Donnerstag, Oktober 05, 2006

 

Fortune dagsins
The trouble with a kitten is that when it grows up, it's always a cat.
-- Ogden Nash.

Eitthvað svo satt við þessa fullyrðingu.


Helstu tíðindi
Nú er ég kominn með skotvopnaleyfi af gerð A sem þýðir að ég má skjóta úr og eiga haglabyssu nr. 12 eða minni, þó eigi sjálfvirkum og hálfsjálfvirkum eða rifflum cal. 22 og minni, þó eigi sjálfvirkum og hálfsjálfvirkum. Hákarlinn ætlar að lána mér einhleypu sem er alveg frábært. Ég fékk þó að taka smá forskot á sælunni því í verklegu kennslunni skutum við 5 skotum af minni riffli, 5 skotum af stærri riffli og var það alvöru hreindýrariffill með scope-i og öllu tilheyrandi svo mér leið eins og Robert DeNiro í Dear Hunter. Loks reyndum við fyrir okkur í leirdúfuskytteríi með tvíhleypu og gekk það svona la la, ég hitti ca 7 stykki af 25 sem telst varla glæsilegur árangur.


MR krókurinn
Jamm þessi liður er kominn aftur. Að vísu hef ég ekki frá miklu að segja fyrir utan að ég er með sömu krakkana og í fyrra og fæ því að fylgja þeim úr skólanum. Þyngst þetta árið vegur tegrun og reynir þá á þær undirstöður sem ég hef reynt að byggja upp á síðasta ári þegar við fórum í markgildi, samfelldni og diffrun. Einnig verður eitthvað farið í talningafræði, þrepun, runur og raðir en að mínu mati er langmikilvægast að börnin nái ágætu valdi á tegrunina og fái góða tilfinningu fyrir þessu öfluga tóli.

Comments:
flott ný mynd;)

má ég svo vera leiðinleg og benda á litla villu hjá þér? það er víst Deer Hunter...hitt er pínu asnalegt og dáldið eins og nafn á mynd sem gerir grín að hinni! veit samt ekki..gæti verið að þú sért að tala um aðra mynd en ég er með í huga??? :)
 
Kæri veiðmaður... sé hvað þú ert að meina. LOL

Annars var hún alveg óskaplega langdregin og leiðinleg að mínu mati.
 
já..ég skildi hana aldrei almennilega...kannski vegna þess að ég sá hana útí Tékklandi, döbbaða á þýsku með tékkneskum texta;) en maður veit ekki, ég lagði allavega ekki aftur í hana
 
haha ég trúi ekki að þú notir LOL!!
 
eftir þetta myndband í dag trúi ég öllu uppá eyjólf:D
 
hahahahahaha, góður pkt... hehe
 
Hey bró

varstu að skipta um myndina af þér? allavega var ég að taka eftir henni núna og hún er mega fín! flottur!

ciao ciao
 
LOL er kúl!
Segir allt sem segja þarf þegar maður er ekki með safn af grafískum brosköllum.

Eyjólfur.. þú ættir að prófa ódöbbaða Deer Hunter með íslenskum texta, held hún sé góð! ;D

kv. -a
 
Kommentar veröffentlichen



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?