Montag, März 17, 2003
Í dag er mér illt í eyrunum, mér líður eins og ég hafi verið að kafa á 100m dýpi og hlustin sé enn samanþjöppuð. Ástæðan er þó allt önnur... ég var bara á tónleikum með Red Hot Chili Peppers í gær. Músikin var svo hávær þarna ekki svo fjarri sviðinu en ég tók eiginlega ekki eftir því hversu hávær hún hafði verið fyrr en út var komið.
Annars var síður en svo auðvelt að fá miða hjá þessari eðalgrúppu. Tónleikarnir voru aldrei auglýstir og auðvitað strax orðið uppselt, athugaði síðan á ebay en sennilega of seint... maður fær alltaf góðu hugmyndirnar aðeins of seint. Síðasta hálmstráið var að fara fyrir utan og reyna að kaupa miða af einhverjum, sem og ég gerði og fékk loks þennan gullna aðgönguseðil fyrir 60CHF (hefði verið ca 150CHF á ebay síðustu dagana).
Tónleikarnir voru hreint út sagt magnaðir. Byrjað á "By the Way", "Scar Tissue", "The Zephyr Song" síðan smá bassa+gítar jam... man ekki framhaldið svo vel en það var víða komið við og varð allt vitlaust í lokin þegar bandið tók "Give it Away" og "Under the Bridge". Ég get því miður ekki haldið því fram að ég sé hás en ég gerði a.m.k. heiðarlega tilraun til þess í gær.